Jólafundur KM og Nanna Rögnvaldardóttir

Jólafundur Klúbbs matreiðslumeistara var haldin á Grand hótel í byrjun desember.  Úlfar Finnbjörnsson og hans lið töfraði fram stórkostlegt Jólahlaðborð hlaðið kræsingum.  Á þessum fundi mættu félagar í uppáklæddir með mökum sínum, happadrætið var að þeirri stærðargráðu að vinningar voru alíka margir og gestir fundarins.  Séra Stefán Gunnlaugsson flutti jóla hugvekju.


Hátindur kvöldsins var þó þegar Nönnu Rögnvaldardóttir var veit Samfélagsorða Klúbbs matreiðslumeistara.  Samfélagsorðan var nú veitt í fyrsta skipti en félagar í Klúbbi matreiðslumeistara hafa lengi velt því fyrir sér hvernig heiðra megi þá einstaklinga sem hafa haft mikil áhrif á framgang fagsins en eru ekki menntaðir matreiðslumenn.


Nanna Rögnvaldardóttir hefur svo sannarlega haft mikil áhrif á framgang fagsins og líklegt er að flestir matreiðslumenn eigi bók hennar Matarást sem var og er stórvirki í útgáfu matreiðslubóka á íslandi. 


Þessi texti hér að neðan er tekin af heimasíðu Forlagsins útgefanda bóka Nönnu.


Nanna Rögnvaldardóttir fæddist 20. mars 1957 og ólst upp í Skagafirði. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1977 og stundaði síðan nám í sagnfræði við Háskóla Íslands um tíma. Hún hefur starfað við bóka- og tímaritaútgáfu frá 1986, lengst af hjá Iðunni og Forlaginu. Nanna hefur alltaf haft áhuga á matargerð en þótti skelfilega vondur kokkur fram undir þrítugt. Hún var farin að safna matreiðslubókum á unglingsárum og á nú hátt í 2000 bækur um mat og matargerð um heim allan. Hún hefur sent frá sér um tuttugu matreiðslubækur, auk annarra bóka, en fyrsta bók hennar um mat var stórvirkið Matarást, sem var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, hlaut viðurkenningu Hagþenkis og viðurkenningu bókasafnsfræðinga sem besta uppflettiritið. Af öðrum bókum hennar má nefna Matreiðslubók Nönnu, Jólamat Nönnu og Sætmeti án sykurs. Einnig hefur hún skrifað bækur um íslenska matargerð á ensku og má þar nefna Icelandic Food and Cookery, Cool Cuisine og Does Anyone Actually Eat This? Nanna er þekkt hérlendis sem erlendis fyrir yfirgripsmikla þekkingu á mat og matreiðslu og hefur haldið erindi á ráðstefnum og skrifað um mat í blöð og tímarit.


  • Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
Eftir Þórir Erlingsson 21. febrúar 2025
Kokkalandsliðið og Íslandshótel í samstarf
Eftir Þórir Erlingsson 17. febrúar 2025
Allir keppendur Íslands hafa lokið keppni
Eftir Þórir Erlingsson 16. febrúar 2025
Global Junior Chef Challenge lokið á Rimini
Eftir Þórir Erlingsson 16. febrúar 2025
Bjarki og María búin að skila
17. janúar 2025
Langar þig í ungkokkalandsliðið?
14. janúar 2025
Klúbbur matreiðslumanna - hátíðarkvöldverður
10. janúar 2025
Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, hefur staðið í ströngu síðustu daga að undirbúa einn glæsilegasta hátíðarkvöldverð sem haldinn er hér á landi ásamt klúbbfélögum. mbl.is/Árni Sæberg
8. janúar 2025
Stærsti og glæsilegasti hátíðarkvöldverður ársins framundan
Eftir Árni Þór Árnason 23. desember 2024
Kokkalandsliðið óskar velunnurum, vinum, vandamönnum og bakhjörlum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Eftir Þórir Erlingsson 5. nóvember 2024
Hópurinn sem æfir fyrir Heimsmeistaramótið í nóvbember 2026
Sýna fleiri fréttir
Share by: