Ertu lærður matreiðslumaður með mikið keppnisskap, keppnisreynslu og skipulagshæfileika?
Kokkalandsliðið keppir á heimsmeistaramótinu í matreiðslu haustið 2022 og fram undan er strangt en skemmtilegt æfingaferli. Þjálfari kokkalandsliðsins þarf að hafa mikinn áhuga og metnað fyrir mat og getu til að taka þátt og stýra hópi matreiðslumanna í ógleymanlegri lífsreynslu sem gerir alla að enn betra fagfólki.
Allir sem hafa áhuga á að taka að sér verkefnið eru hvattir til að senda inn umsókn og ferilskrá á [email protected] og þar fást einnig nánari upplýsingar. 

Umsóknarfrestur er til 22. janúar nk.
Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara