KOKKALANDSLIÐIÐ 1991
1991
Alþjóðleg matreiðslukeppni í Chicago – Árið 1991
Það var matreiðslukklúbburinn Framandi sem stofnaði upphaflega Íslenska Kokkalandsliðið sem síðar tók þátt í alþjóðlegu matreiðslukeppninni í Chicago árið 1991. Framandi var klúbbur fyrir þá sem á þeim tíma voru ekki gjaldgengnir í Klúbb Matreiðslumeistara, en skilyrði fyrir þátttöku er að keppendur séu meðlimir í Alþjóðasamtökum matreiðslumanna en Íslandsdeild þeirra er Klúbbur Matreiðslumeistara. Eftir keppnina fengu allir meðlimir í Framanda heiðursorðuna Gordon Blue og inngöngu í KM og þá fjaraði Framandi út.
Keppnin tók fjóra daga og keppt var bæði í heita og kalda, en Íslenska Kokkalandsliðið fékk silfur og brons.
Matseðillinn í heita var eftirfarandi:
Vatnakrabbasúpa með geddurúllum
Salat með gröfnu lambi og balsamískri vínediksósu
Önd að hætti Reykjavíkur borin fram með sveppaúrvali og rósmarínilmandi sósu
Eftirréttur „Apple Bavarian” með ananassósu og bláberju
Meðlimir Kokkalandsliðsins árið 1991:
- Ásgeir Helgi Erlingsson
- Baldur Öxdal Halldórsson
- Bjarki Hilmarsson
- Úlfar Finnbjörnsson
- Örn Garðarsson
- Sigurður L Hall
- Sverrir Halldórsson
Kokkalandsliðið árið 1991
Meistarakokkarnir í Framanda sem skipuðu keppnisliðið sem fór til Chicago árið 1991
Kokkalandslið Íslands 1991.
Vikan 25. júlí árið 1991.
Smellið á mynd til að stækka (pdf-skjal – 53 mb)