Kokkur ársins - Skráning

Kokkur ársins 2024

Keppnirnar um Kokk ársins og Grænmetiskokk ársins verða haldnar í IKEA 11. til 13. apríl

næst komandi.


Þátttaka er frí og eru allir matreiðslumenn hvattir til að taka þátt. Grunnhráefni í forkeppninni verða kynnt mánudaginn 8. apríl í eldhúsdeild IKEA og í beinni útsendingu á Facebook síðu Kokkalandsliðsins. Forkeppnin fer svo fram fimmtudaginn 11. apríl þar sem keppendur þurfa að skila mynd og uppskrift ásamt því að matreiða rétt sinn, keppendur munu hafa 1,5klst til að afgreiða rétt sinn en keppendur mega koma með rétt sinn fulleldaðan ef þeim hugnast svo.


Úrslit í Grænmetiskokkur ársins fara fram föstudaginn 12. apríl og í Kokk ársins laugardaginn 13. apríl. Sigurvegarar í báðum keppnum vinna sér inn rétt til að taka þátt í norðurlandakeppnum, annars vegar í Nordic Green Chef og hins vegar í Nordic Chef sem haldnar verða í mars 2025.


Nánari upplýsingar verða sendar á keppendur við skráningu.

Contact Us

Share by: